Kvikmyndastjarna í ævintýraferð með Kúbu-romm og vindla 17. desember 2010 09:00 Alexander Briem fór til Kúbu með tveimur vinum sínum og upplifði gettóin þar af eigin raun. Hann var síðan rændur á síðasta degi. „
Maður er bara búinn að vera sofandi og er enn nokkuð vankaður yfir tímamismuninum,“ segir leikarinn Alexander Briem. Hann er nýkominn heim úr þriggja vikna ævintýraferð til Kúbu ásamt tveimur vinum sínum þar sem náin kynni við kúbverskt romm og vindla voru meðal efnisatriða á dagskránni. Alexander verður heimsfrægur á Íslandi á annan í jólum þegar kvikmyndin Gauragangur verður frumsýnd. Þar leikur Alexander Orm Óðinsson, eina þekktstu skáldsagnapersónu íslenskra unglingabókmennta. Alexander vill hins vegar ekki ganga svo langt að kalla Kúbuferðina manndómsvígslu þótt allan lærdóm, að hans mati, megi flokka sem einhvers konar manndómsvígslu. „En þetta var allt öðruvísi en maður á að venjast, nýr heimur.“ Alexander segir að þeir hafi eytt fyrstu vikunni á hefðbundnum ferðamannastöðum en svo hætt sér djúpt í fátækragettóin þar sem reggeaton hljómaði látlaust og romm og kúbuvindlar voru á hverju strái. „Við vorum oft staddir í aðstæðum sem maður sér bara í bíómyndum,“ segir Alexander. Alexander segir ferðina sjálfa hafa gengið áfallalaust fyrir sig ef undanskilinn er síðasti dagurinn, hann reyndist ansi örlagaríkur. „Við höfðum komist af án þess að vera rændir og vorum bara á leiðinni út á flugvöl með rútu þegar ég áttaði mig á því að ég hafði gleymt veskinu mínu á hótelinu þaðan sem við tókum rútuna. Við fórum til baka, fundum veskið en það var auðvitað tómt,“ útskýrir Alexander. Til að bæta gráu ofan á svart eyddust út allar myndirnar sem þeir félagar höfðu tekið.- fgg
Mest lesið Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Sjá meira