Líklegt að ástandið lagist í næstu viku 14. október 2010 05:30 Ráðuneytið segir að miðað við framleiðsluspár mun framboð á kjúklingi aukast á ný í næstu viku. fréttablaðið/hari
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur undanfarna daga fengið fyrirspurnir frá tveimur heildsölum um aukningu á innflutningskvóta á kjúkling. Ástæðan er skortur á innlendum kjúklingi á landinu sem hefur verið viðvarandi sökum skæðrar salmonellusýkingar sem herjaði á kjúklingabú í vor. Ólafur Friðriksson, skrifstofustjóri framleiðslu- og markaðsskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, segir ráðuneytið fyrst hafa heyrt af skortinum á þriðjudag og staðfestir að hann sé til kominn vegna sýkingarinnar í vor. Hann segir þessa viku vera sérlega bágborna hvað varðar framboð en telur líklegt að jafnvægi komist á aftur í næstu viku miðað við framleiðsluspár fyrirtækjanna. „Að því gefnu að ekkert komi upp á er líklegt að framboðið verði orðið eðlilegt í næstu viku,“ segir Ólafur. Hann telur ekki ástæðu til þess að endurskoða núverandi tollkvóta á kjúkling sökum þessa og breytingar á þeim taki fleiri vikur. Hann segir engar verslanir hafa haft beint samband við ráðuneytið sökum skortsins. Vegna fréttar á forsíðu Fréttablaðsins í gær vill Matthías Hannes Guðmundsson, framkvæmdastjóri Reykjagarðs, árétta að hann hafi ekki sagt í samtali við blaðið að fyrirtækið hafi getað afgreitt allar pantanir. Hann hafi sagt aðspurður að fyrirtækið hafi verið í vandamálum vegna salmonellusýkingar en ástandið væri að lagast. Að því leyti væri ekki fyrirsjáanlegur skortur hjá Reykjagarði.- sv
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira