Innlent

Bæjarráð Seyðisfjarðar: Aðför gerð að landsbyggðarfólki

Frá Seyðisfirði.
Frá Seyðisfirði. MYND/Fréttablaðið/Einar Bragi
Bæjarráð Seyðisfjarðar hefur nú bæst í hóp fjölmargra sveitastjórna sem mótmælt hafa niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Í nýrri bókun ráðsins lýsir ráðið algjörri andúð sinni á þeirri aðför að landsbyggðinni og afkomumöguleikum fólks þar, sem birtist í framlögðum niðurskurðartillögum í Fjárlagafrumvarpi 2011 um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu á Austurlandi.

Samstöðuhópur á Seyðisfirði hefur boðað til fundar við sjúkrahúsið á Seyðisfirði á sunnudaginn kl. 13 þar sem mótmæla á boðuðum niðurskurði fjárveitinga til heildbrigðismála á Austurlandi. „Þessi fordæmalusi niðurskurður er aðför að bænum okkar og landsbyggðinni og ógnar tilverurétti okkar," segir í fundarboði hópsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×