Lífið

Íslendingar í rúllettu hjá gjafara í Litháen

Hans Martin Nakkim óttast ekki að litháískir gjafarar í rúllettu Betsson verði fyrir einhverju áreiti, menn vilji yfirleitt bara giftast þeim.
Hans Martin Nakkim óttast ekki að litháískir gjafarar í rúllettu Betsson verði fyrir einhverju áreiti, menn vilji yfirleitt bara giftast þeim.
Veðmálafyrirtækið Betsson opnar í dag spilavíti á íslensku vefsvæði sínu. Spilarar geta þá tengst við alvöru gjafara sem staddur er í Litháen og spilað 21, rúllettu eða baccarat.

Um er ræða alvöru gjafara, í öllum tilvikum konur frá Austur-Evrópu, sem spilarar geta jafnframt spjallað við á léttum nótum í gegnum spjallkerfi. Hugmyndin er því að leikmenn heima í stofu upplifi eins og þeir séu staddir í alvöru spilavíti.

Hans Martin Nakkim, markaðsstjóri Betsson, sagði í samtali við Fréttablaðið að ámóta síður hefðu verið opnaðar í Grikklandi, Ítalíu og Tyrklandi. „Þetta hefur mælst vel fyrir þar og þess vegna ákváðum við að færa aðeins út kvíarnar," segir Hans Martin.

Hægt er að spjalla við gjafarana á vefnum.
Hann vonast til að þessi útgáfa eigi eftir að mæta að einhverju leyti þörfum þeirra Íslendinga sem vilja spila peningaspil á spilavítum. „Ég hef sjálfur komið til Íslands og verið inni á svona lokuðum pókerklúbbum þannig að þessi markaður er fyrir hendi."

Hans Martin óttast ekki að gjafarnir verði fyrir óþægilegu áreiti frá spilurum. „Þær eru mjög vel meðvitaðar um að þetta er netið með öllu sínu nafnleysi. Okkar reynsla frá Grikklandi, Ítalíu og Tyrklandi er hins vegar sú að þær hafa fengið miklu fleiri bónorð heldur en einhver leiðindi."- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.