Lífið

Claudia Schiffer hneykslar í gervi svartrar fyrirsætu

Umrædd vandræðamynd er hér lengst til hægri í efri röð.
Umrædd vandræðamynd er hér lengst til hægri í efri röð.
Claudia Schiffer hefur ekki verið þekkt fyrir að ganga fram af fólki heldur þykir fyrirsætan fremur hefðbundin. Samstarf hennar og Karl Lagerfeld gæti þó breytt þeirri ímynd.

Myndaþáttur með þýsku fyrirsætunni Cladiu Schiffer í tískutímaritinu Stern Fotografic hefur valdið miklum deilum. Myndirnar voru teknar sem hluti af herferð kampavínsframleiðandans Dom Perignon árið 2007 og eru þær birtar í tilefni af sextíu ára afmæli tímaritsins.

Karl Lagerfeld hafði yfirumsjón með myndatökunni en á myndunum sést Schiffer með afró-hárgreiðslu í pilsi og hefur fyrirsætan verið máluð svört. Fimm aðar myndir af öðrum fyrirsætum úr myndatökunni voru einnig birtar en það eru fyrst og fremst Claudiu Schiffer-myndirnar sem hafa valdið miklum úlfaþyt.

Ritstjóri tískutímaritsins Pride, Shevelle Rhule, gagnrýnir myndbirtinguna harðlega. Segir hana niðurlægjandi fyrir svartar fyrirsætur. „Þetta er lélegt. Það eru ekki of margar svartar fyrirsætur í lífstílsblöðum og þessar myndir sýna fram á að það sé alls ekki nauðsynlegt, menn geti bara notað hvítar fyrirsætur og málað þær svartar," segir Rhule. Hún bætir því við að tímaritið hafi eflaust ekki ætlað að móðga neinn og að myndaþátturinn hafi verið hugsaður sem ögrandi.

„En menn hafa augljóslega ekki velt fyrir sér sögunni og hvernig þetta lítur út þegar myndirnar hafa verið prentaðar. Þetta minnir einna helst á sýningarnar sem haldnar voru eftir þrælastríðið í Bandaríkjunum þar sem hvítir leikarar voru málaðir svartir og þeir sýndir sem heimskir og latir," segir Rhule.

Talsmaður Schiffer segir myndirnar hafa verið teknar útúr samhengi og að þær hafi átt að sýna undarlega hugaróra karlmanna. „Þeim var ekki ætlað að móðga neinn, þetta eru mjög listrænar myndir og í miklu uppáhaldi hjá Karli Lagerfeld."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.