Tveir íslenskir hjúkrunarfræðingar til Haítí á vegum Rauða krossins 4. febrúar 2010 13:34 Haítí.
Hjúkrunarfræðingarnir Lilja Steingrímsdóttir og Maríanna Csillag eru á leið til Haítí þar sem þær munu starfa á tjaldsjúkrahúsi þýska Rauða krossins. Tjaldsjúkrahúsið sinnir 700 sjúklingum á dag, og er staðsett við íþróttaleikvang í Carrefour, einu fátækasta hverfi höfuðborgarinnar Port-au-Prince, en þar hafa tugþúsundir manna leitað skjóls við mjög slæmar aðstæður. Lilja heldur til Haítí næsta sunnudag, 7. febrúar. Hún starfar sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítalans. Lilja hefur tvisvar áður starfað fyrir Rauða krossinn, á Taílandi og í Pakistan. Maríanna er einn reynslumesti sendifulltrúi Rauða kross Íslands og hefur starfað við fjölmargar neyðaraðgerðir Rauða kross hreyfingarinnar í Afríku, Asíu og Evrópu. Maríanna fer til Haítí 15. febrúar. Tveir sendifulltrúar Rauða kross Íslands fóru til starfa á Haítí nokkrum dögum eftir að jarðskjálftinn reið yfir. Hlín Baldvinsdóttir starfar með neyðarsveit Alþjóða Rauða krossins sem sér um skipulagningu neyðaraðgerða fyrstu vikurnar. Friðbjörn Sigurðsson læknir starfar á sjúkrahúsi þýska Rauða krossins. Þau munu að öllum líkindum halda heim seinni partinn í febrúar. Rauði kross Íslands tekur enn við framlögum í söfnunarsímanum 904 1500, en þá gjaldfærast 1.500 krónur á næsta símreikning, og á reikning 0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649. Að gefnu tilefni vill Rauði krossinn árétta að félagið er einungis að safna fé fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí með þessum hætti.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Sjá meira