Meirihlutinn af tækjunum fenginn að gjöf 25. desember 2010 19:00
Landspítalinn hefur fengið gjafir sem hlaupa á mörg hundruð milljónum króna í ár. Forstjóri spítalans kann velunnurun spítalans bestu þakkir, en segir áhyggjuefni að þurfa að treysta á gjafir við rekstur spítalans. Mikið af búnaði spítalans er fengnn að gjöf frá alls kyns góðgerðafélögum, fyrirtækjum og einstaklingum, en á fæðingardeildinni einni má meðal annars telja allt frá hitakössum til voga. Gjafirnar nema hundruð milljónum í ár, en þrjár stærstu gjafir spítalans nema hátt í 200 milljónum einar og sér. Björn Zoega, forstjóri spítalans segir gjafirnar hafa færst í aukana frá því fyrir hrun. „Það er ívið meira sem er gefið núna. Það er skilningur á því að þörfin er meiri," segir Björn. Björn segir mikið þakklæti innan spítalans fyrir þennan stuðning, enda sé hann afar þýðingarmikill. „Spítalinn er auðvitað mjög þakklátur fyrir þá hjálp sem hann fær núna. Við erum í miklum erfiðleikum, það hefur verið mikill niðurskurður og við höfum fengið óvenjulítið af peningum til tækjakaupa síðustu ár. Þess vegna viljum við sýna okkar þakklæti, sérstaklega núna yfir jólin, fyrir þessar miklu gjafir sem við höfum fengið." „Ég vil nú halda því fram að meiriparturinn af tækjunum sem við erum með í notkun núna hafi komið með gjöfum af einhverri tegund," segir Björn. Björn hefur þó áhyggjur af því að þurfa að treysta á gjafir upp að þessu marki við rekstur spítalans. „Auðvitað höfum við áhyggjur af því. Tækjakostur okkar er orðinn gamall, þó þetta hjálpi til. Við höfum auðvitað áhyggjur af því að ef ekkert verður gefið í á næstu árum, þá munum við lenda í vandræðum á endanum."
Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Fleiri fréttir Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Sjá meira