Innlent

Kominn úr öndunarvél

Frá slysstað
Frá slysstað Mynd/Friðrik Þór Halldórsson
Ungur maður, sem hefur verið haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys við Nýbýlaveg í fyrrinótt, er komin úr öndunarvél. Hann er á batvegi, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans.

Fimm ungmenni voru í bílnum og slösuðust tvö þeirra alvarlega og eru þau á batavegi. Slysið varð á mótum Hafnarfjarðarvegar og Nýbýlavegar í Kópavogi. Lögreglan kannar hvort að ofsaakstur hafi valdið því að ökumaður missti stjórn á bifreiðinni.




Tengdar fréttir

Enn haldið sofandi í öndunarvél

Ungum manni er enn haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys við Nýbýlaveg í nótt. Fimm ungmenni voru í bílnum og slösuðust tvö þeirra alvarlega.

Tveir fluttir á gjörgæsludeild

Tvö af ungmennunum fimm sem flutt voru á slysadeild eftir alvarlegt umferðaslys á Hafnarfjarðavegi í nótt eru komin á gjörgæsludeild Landspítalans. Þau eru bæði alvarlega slösuð og er öðru þeirra haldið sofandi í öndunarvél. Hin þrjú eru enn á slysadeild en verða að öllum líkindum útskrifuð þaðan í dag, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×