Ís­land - Króatía 33-34 | Of seint á­hlaup og bronsið fer til Króatíu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Strákarnir voru eðlilega niðurlútir í leikslok.
Strákarnir voru eðlilega niðurlútir í leikslok. Vísir/Vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf að sætta sig við 4. sæti Evrópumótsins í handbolta eftir súrt eins marks tap gegn Króötum í bronsleiknum í dag, 34-33.

Ekki vantaði upp á að íslensku strákarnir væru að skapa sér færi í upphafi leiks, en hins vegar vantaði nokkuð upp á að nýta færin. Matej Mandic gerði íslenska liðinu erfitt fyrir í króatíska markinu og þá var þversláin að þvælast óþarflega oft fyrir strákunum.

Íslendingar skoruðu aðeins eitt mark fyrstu fimm mínútur leiksins, en sem betur fer var markaskorun Króata ekki mikið skárri. Eftir fimm mínútna leik var staðan 2-1, Króatíu í vil.

Færanýting Íslands var ekkert til að hrópa húrra yfir í fyrri hálfleik.Vísir/Vilhelm

Króatar voru áfram með yfirhöndina næstu mínútur og náðu þriggja marka forystu þegar tíu mínútur voru liðnar af leiknum. Skotnýting Íslands á þessum tímapunkti var undir fjörutíu prósentum, sem er ekki vænlegt til árangurs og Snorri Steinn brá á það ráð að taka leikhlé eftir um þrettán mínútna leik.

Ekki skánaði staða íslenska liðsins eftir leikhléið og fimm mínútum síðar var munurinn orðinn fimm mörk.

Snorri Steinn þurfti að taka leikhlé snemma leiks.Vísir/Vilhelm

Þá breytti íslenska liðið um varnartaktík. Íslenska vörnin mætti framar og Björgvin Páll Gústavsson mætti í markið og það reyndist heillaspor fyrir íslenska liðið. Með góðri vörn fylgir oft góð sókn og strákarnir okkar minnkuðu muninn fljótt niður í tvö mörk.

Bjögvin Páll kom vel inn í íslenska markið.Vísir/Vilhelm

Ísland fékk svo tækifæri til að minnka muninn niður í eitt mark undir lok fyrri hálfleiksins, en nýtti þann séns ekki. Króatar komust aftur í þriggja marka forystu áður en Viggó Kristjánsson fiskaði víti fyrir Ísland í lokasókn liðsins fyrir hlé sem Ómar Ingi Magnússon skoraði úr, en Króatar náðu aftur þriggja marka forskoti með snöggri sókn áður en hálfleiksflautið gall. Staðan 17-14, Króötum í vil, þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Síðari hálfleikur fór svo hægt af stað. Íslensku strákarnir töpuðu boltanum í sínum fyrstu tveimur sóknum eftir hlé og skutu í stöng í þeirri þriðju. Það var íslenska liðinu hins vegar til happs að króatíska liðið nýtti ekki heldur sínar fyrstu þrjár sóknir áður en Elliði Snær Viðarsson kom boltanum loksins í netið fyrir íslenska liðið.

Áfram var íslenska liðið þó að elta og ekki batnaði staðan þegar Viggó Kristjánsson fékk að líta beint rautt spjald fyrir að fara í andlitið á Ivan Martinovic.

Króatar nýttu refsitíman vel og komust aftur í fimm marka forystu.

Viggó Kristjánsson var sendur upp í stúku.Vísir/Vilhelm

Íslenska liðið var því áfram að elta og í þau skipti sem strákarnir fengu tækifæri til að minnka muninn niður fyrir fjögur mörk virtist boltinn tapast óþarflega oft.

Munurinn á liðunum hélst því í fjórum til fimm mörkum alveg þangað til að um tíu mínútur voru til leiksloka. Þá náði króatíska liðið sex marka forskoti og brekkan orðin ansi brött fyrir strákana okkar.

Það var hart barist um hvern einasta bolta.Vísir/Vilhelm

Snorri Steinn tók leikhlé fyrir íslenska liðið í næstu sókn sem skilaði tveimur mörkum í röð fyrir Ísland.

Ómar Ingi Magnússon minnkaði muninn svo niður í þrjú mörk með sínu tíunda marki í leiknum þegar um fjórar mínútur voru til leiksloka. Líflína fyrir Ísland.

Stuttu síðar varði Viktor Gísli Hallgrímsson vítakast og Óðinn Þór Ríkharðsson minnkaði muninn niður í tvö mörk þegar um tvær og hálf mínúta var eftir. Allt í einu virtist fjallið ekki svo óklífanlegt.

Viktor Gísli varði svo annað víti og á hinum endanum minnkaði Ómar Ingi muninn niður í eitt mark af vítapunktinum. Ein mínúta eftir, Króatar með boltann, Íslendingar manni færri og Dagur Sigurðsson tók leikhlé.

Viktor Gísli gaf íslenska liðinu von.Vísir/Vilhelm

Króatíska liðið nýtti hins vegar sína lokasókn og tryggði sér sigurinn. Haukur Þrastarson skoraði eitt sárabótarmark í lokin og niðurstaðan varð eins marks tap Íslands, 33-34.

Strákarnir okkar verða því að sætta sig við 4. sætið á EM, en Króatar taka bronsið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira