Vilja semja við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum Höskuldur Kári Schram skrifar 7. september 2010 12:03 Guðbjartur Hannesson.
Meirihluti sáttanefndar um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða leggur til að samið verði við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum til ákveðins tíma gegn leigugjaldi. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem var afhent ráðherra nú í morgun. Um er að ræða svokallaða samningaleið en hún felur í sér að ríkið gangi til samninga við núverandi kvótaeigendur um nýtingarétt á aflaheimildum til ákveðins tíma. Talað er um 15 til 25 ár í því samhengi. Þá er einnig gert ráð fyrir því að sjávarútvegsfyrirtæki greiði sérstakt leigugjald en samningar endurnýjast hins vegar sjálfkrafa. Ennfremur leggur nefndin til að fiskveiðiauðlindin verði skilgreind sem þjóðareign í stjórnarskrá. Meirihluti nefndarinnar, þar á meðal hagsmunaraðilar, féllst á þess leið en minnihluti nefndarinar vildi fara uppboðsleiðina svokölluðu. Guðbjartur Hannesson, er formaður nefndarinnar. Aðspurður hvort það sé búið að falla frá fyrningaleiðinni svaraði hann: „Fyrning var aldrei inni í stjórnarsáttmálanum sem slík. Menn hafa alltaf einhverjar ákveðnar hugmydnir hvað fyrning er. Þegar við töluðum um innköllun á endurúthlutun á 20 árum þá er engan vegin búið að falla frá því, það þýðir í raunveruleikanum að það sé gengið skýrt frá eignarhaldinu. Þeir sem séu handahafar þessarar heimilldar með aflamarki til eins árs í senn að þeim sé gert ljóst að þeir séu ekki eigendur þessarar auðlindar heldur þjóðin og geta eingöngu haft af því tímabundinn afnotarétt." En á eftir að útfæra tillögur nefndarinnar og það mun koma í hlut sjávarútvegsráðherra að vinna úr skýrslunni. Guðbjartur telur að sú vinna muni taka nokkra mánuði til viðbótar. „Það er meginniðurstaða hópsins að skoða ákveðnar hugmyndir en ég lít svo á að það sé svo margt óljóst hvernig það verður útfært þannig að það verður heilmikil framhaldsvinna til að komast að niðurstöðu í málinu," segir Guðbjartur. Skýrsluna má í heild sinni sjá hér.
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira