Innlent

Reykurinn í rofasal

Mynd/GVA
Bilun varð í rofahúsi álvers Norðuráls á Grundartanga í kvöld sem varð til þess að rafmagn var slegið af álverinu. Minniháttar bruni olli því að reykur kom úr rýminu og fóru lögreglu- og slökkviðiliðsmenn á vettvang. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Borgarnesi var fólk ekki í hættu. Starfi slökkviliðsmana lýkur innan skamms en nú er unnið að því að hleypa rafmagni á álverið á nýjan leik.

Fram kemur á vef Ríkisútvarpsins að straumur hafi einnig farið að hluta álvers Alcan í Straumsvík og að umtalsverðar rafmagnstruflanir hafi orðið víðsvegar um landið í kvöld. Ekki er vitað hvað olli biluninni en unnið er að viðgerð, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti.


Tengdar fréttir

Reykur í álverinu á Grundartanga

Reykur kom upp í rými í álverinu á Grundartanga nú undir kvöld og var slökkviliðið á Akranesi kallað út vegna þess. Ekki er vitað á þessari stundu hvað veldur reyknum. Allt starfsfólk sem var inni í álverinu þegar að reyksins varð vart er komið út úr húsinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×