Innlent

Bílvelta á Grundarstíg

Bíl var ekið utan í handrið við Grundarstíg í miðborg Reykjavíkur um tvö leitið í nótt með þeim afleiðingum að bíllinn valt.

Vitni sáu karl og konu komast út úr bílnum og taka til fótanna. Fólkið fannst skömmu síðar og var fyrst flutt á slysadeild til aðhlynningar og síðan í fangageymslur, enda leikur grunur á ölvunarakstri.

Lögregla minnist þess ekki að bíll hafi áður oltið á Grundarstíg, sem er þröngur og hámarkshraði þar er aðeins 30 kilómetrar á klukkustund.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×