Leggja til breytingar á meðlagskerfinu 4. febrúar 2010 13:22
Nefnd sem falið var að endurskoða ákvæði barnalaga um framfærslu barna leggur til umfangsmiklar breytingar á meðlagskerfinu. Í frumvarpi sem nefndin hefur sett saman er lagt til rýmri samningsfrelsi foreldra um skiptingu kostnaðar vegna framfærslu barns og um greiðslu meðlags. Áhugasamir eru hvattir til að að kynna sér efni þess og senda dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu ábendingar. Í frumvarpinu er lagt til að rýmka samningsfrelsi foreldra um skiptingu kostnaðar vegna framfærslu barns og um greiðslu meðlags, að fram kemur í tilkynningu. Rökin eru fyrst og fremst þau að ábyrgð á framfærslu barns hvíli á herðum foreldra. Þá þykir það barni almennt fyrir bestu ef foreldrum sem ekki búa saman tekst að ná samstöðu um öll atriði sem varða hagsmuni barns. Þannig er meðal annars lagt til að skylda til að semja um meðlag við skilnað og sambúðarslit foreldra verði afnumin og enn fremur að ákvæði um lágmarksfjárhæð meðlags verði afnumið. Ef foreldrum tekst ekki að semja um skiptingu kostnaðar af framfærslu barns er gert ráð fyrir að unnt verði að úrskurða það foreldri sem barn býr ekki hjá til að greiða meðlag með barninu. Í frumvarpinu er lagt til að miðað verði við að lágmarksframfærslukostnaður barns sé 54.000 krónur og að við meðlagsákvörðun skuli skipta lágmarksframfærslukostnaði barns milli foreldra í hlutfalli við tekjur eða aflahæfi beggja. Við afmörkun tekna er fyrst og fremst gert ráð fyrir skattskyldum tekjum beggja en einnig er gert ráð fyrir að bæta við tekjurnar þeim barnabótum sem foreldri fær eða mun fá vegna viðkomandi barns. Með þessu móti má segja að barnabætur nýtist báðum foreldrum, að fram kemur í tilkynningunni. Almenningur getur gert athugasemdir við frumvarpið Í nefndinni, sem þáverandi dómsmálaráðherra skipaði árið 2008, áttu sæti þau Guðný Björk Eydal, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, sem jafnframt var formaður, Hrefna Friðriksdóttir, lektor í sifja- og erfðarétti við Háskóla Íslands, og Ásgeir Eiríksson, fulltrúi sýslumannsins í Keflavík. Starfsmaður nefndarinnar var Guðmundur Örvar Bergþórsson, lögfræðingur í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu. Frumvarpið er nú lagt fram til kynningar og eru áhugasamir hvattir til að kynna sér efni þess og senda ráðuneytinu ábendingar og athugasemdir á netfangið postur@dmr.stjr.is fyrir 15. febrúar næstkomandi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira