Innlent

Hæstiréttur vísar úrskurði um níumenninga frá dómi

Hæstiréttur hefur vísað frá dómi kröfu Ragnars Aðalsteinssonar, lögmanns níumenninganna svokölluðu sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi í Búsáhaldabyltingunni. Ragnar krafðist þess að máli þeirra yrði vísað frá þar sem settur ríkissaksóknari, Lára V. Júlíusdóttir, væri í ákveðnum trúnaðartengslum við kærandann, það er að segja Alþingi. Lára situr í bankaráði Seðlabanka Íslands og er þangað kosin af Alþingi.

Héraðsdómur vísaði kröfu Ragnars frá á sínum tíma og Hæstiréttur komst að því í dag að ekki sé hægt að kæra þann úrskurð til Hæstaréttar, og því er málinu vísað frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×