Innlent

Búist við ákæru þegar rannsókn er lokið

Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri.
Rannsókn er komin langt á veg í máli mannsins sem hélt samnemendum sínum í gíslingu í herbergi á nemendabústöðunum á Hvanneyri í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er búið að taka skýrslur af að minnsta kosti þremur árásarþolum. Búist er við því að ákæra verði gefin út þegar rannsókninni er lokið.

Maðurinn ógnaði fólkinu með hnífi og fengu nokkrir nemendur áfallahjálp. Ágúst Sigurðsson rekstur Landbúnaðarháskólans sagði í samtali við Vísi í síðustu viku að málið sé litil alvarlegum augum í skólanum og sagðist búast við því að maðurinn yrði rekinn úr skólanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×