Innlent

Ásgerður Jóna vill verða ráðuneytisstjóri

Ásgerður Jóna Flosadóttir vill verða ráðuneytisstjóri
Ásgerður Jóna Flosadóttir vill verða ráðuneytisstjóri vísir/gva
Umsóknarfrestur um embætti ráðuneytisstjóra efnahags- og viðskiptaráðuneytisins rann út á miðnætti. Á meðal umsækjenda er Ásgerður Jóna Flosadóttir framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar Íslands og Sigrún Elsa Smáradóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi.

Ráðuneytið hefur skipað hæfnismatsnefnd til þess að meta umsækjendur. Í þeirri nefnd eru Kristín Benediktsdóttir, lögfræðingur, formaður, Magnús Pétursson, ríkissáttasemjari, og Sveinn Hannesson, viðskiptafræðingur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×