Innlent

Mega veita eftirför en hafa ekki hlotið þjálfun

Tollgæslumönnum er heimilt að veita mönnum eftirför, þrátt fyrir að hafa ekki hlotið sérstaka þjálfun í forgangsakstri. Harður árekstur varð í morgun þegar Jeppi, sem tollayfirvöld eltu lenti framan á Strætisvagni.

Áreksturinn varð á mótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar laust fyrir klukkan átta í morgun. Höggið var svo mikið að jeppi smyglarans er gjörónýtur, og strætisvagninn þeyttist mikið skemmdur á stórann ljósastaur og felldi hann. Enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum.

Eftirförin hófst við Sundahöfn í Reykjavík, en ökumaður jeppans er skipverji á vöruflutningaskipi Eimskips. Tollverðir reyndu ítrekað að stöðva bifreiðina, en án árangurs. Því var ákveðið að hefja eftirför en stutt er síðan reynt var að smygla fíkniefnum í gegnum tollahliðið.

Tollgæslumönnum er heimilt að veita eftirför sem þessa samkvæmt tollalögum. En þrátt fyrir það hafa þeir ekki hlotið neina sérstaka þjálfun í forgansakstri líkt og lögreglumenn.

Embætti tollstjóra vildi ekki veita fréttastofu viðtal í dag vegna málsins. Forstöðumaður tollasviðs sagði þó að embættið myndi forðast það í lengstu lög að veita mönnum eftirför. Í morgun hafi ekki verið vitað hvað væri í bílnum þegar ákvörðunin var tekin. Háttsemi mannsins hafi þótt með öllu óviðuanandi og því hefði verið ákveðið að veita honum eftirför.

Hún sagði að skoða mætti, í ljósi atburða dagsins, hvort tollgæslumenn þyrftu slíka þjálfun.

Við leit í bílnum kom í ljós að einungis var um áfengi og tóbak að ræða, en ekkert fæst upp gefið um magn. Lögregla tók skýrslu af ökumanninum vegna málsins, en honum var sleppt um miðjan dag í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×