Innlent

Tobba sagði upp - Svanur Már tekur við sem ritstjóri

Tobba segir að það hafi verið mikið áfall þegar hún frétti að Eiríkur hefði verið rekinn.
Tobba segir að það hafi verið mikið áfall þegar hún frétti að Eiríkur hefði verið rekinn.
„Ég sagði upp, ég er búin að vera þarna síðan ég útskrifaðist, þetta var komið gott,“ segir Þorbjörg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba, blaðamaður á Séð og heyrt.

„Það var mikið áfall þegar ég frétti að Eiríkur hefði verið rekinn,“ segir Tobba en hún sagði upp í kjölfar þess að Eiríkur var rekinn í morgun.

Samkvæmt heimildum Vísis mun Svanur Már Snorrason blaðamaður á Séð og heyrt taka við af Eiríki Jónssyni sem ritstjóri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×