Innlent

Skipverji tekinn með smygl á Bústaðarvegi

Maðurinn er skipverji á vöruflutningaskipi Eimskips og var að koma út af athafnasvæði skipafélagsins þegar eftirförin hófst.
Maðurinn er skipverji á vöruflutningaskipi Eimskips og var að koma út af athafnasvæði skipafélagsins þegar eftirförin hófst.

Maðurinn sem starfsmenn Tollgæslunnar veittu eftirför á sjöunda tímanum í morgun sem endaði með árekstri á gatnamótum Búastaðarvegar og Háaleitisbrautar var með „talsvert magn af smyglvarningi" í bifreið sinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Tollgæslunni.

Tollverðir höfðu veitt manninum eftirför frá Sundahöfn í Reykjavík og reyndu þeir ítrekað að fá ökumanninn til þess að stöðva bifreiðina með merkjagjöf en án árangurs. „Haft var samband við lögreglu sem kom strax á vettvang," segir ennfremur.

Eftirförin fór svo þannig að ökumaðurinn missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hann ók yfir umferðareyju og í veg fyrir strætisvagn.

„Maðurinn sem er skipverji á vöruflutningaskipi Eimskips var að koma út af athafnasvæði skipafélagsins þegar eftirförin hófst. Tollstjóri hafði samband við Eimskip og var tjáð að tekið yrði á málinu í samvinnu við tollgæsluna," segir einnig.

„Við leit í bifreiðinni fundu tollverðir talsvert magn af smyglvarningi, en ekki er hægt að greina frá magni á þessari stundu."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×