Innlent

Eftirför Tollgæslumanna endaði með árekstri

Jeppi og strætisvagn lentu í hörðum árekstri á mótum Bústaðavegar og Háaleitisbtrautar á áttunda tímanum í morgun og voru ökumenn beggja bílanna fluttir á slysadeild.

Hvorugur þeirra mun vera alvarlega slasaður og engan farþega í vagninum sakaði.

Tildrög voru þau að starfsmenn tollgæslunnar voru að elta jeppann, og var ökumaður hans að reyna að komast undan, þegar slysið varð. Ekki fást enn upplýsingar um tilefni eftirfararinnar, en umferðartafir eru enn á vettvangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×