Rifu í hár og potuðu í auga 10. júní 2010 03:00
Tveir menn á fertugsaldri hafa verið ákærðir fyrir að valda óspektum á almannafæri á Patreksfirði á síðasta ári. Þeir hafi verið „mjög æstir og ögrandi í framkomu við nærstadda", svo til ryskinga hafi komið. Annar þeirra er ákærður fyrir að hafa barið með báðum höndum á lögreglubíl, opnað hurð á honum og reynt að toga mann út, þannig að til átaka hafi komið. Þá eru báðir mennirnir ákærðir fyrir brot gegn valdstjórninni. Annar er ákærður fyrir að hrinda lögreglukonu við skyldustörf svo hún lenti á húsvegg og marðist. Hinn er ákærður fyrir að hafa með ofbeldi og hótunum um ofbeldi leitast við að hindra þrjá lögreglumenn sem voru við skyldustörf, með því að hafa verið ógnandi í framkomu, óhlýðnast fyrirmælum og leitast við að koma félaga sínum undan handtöku. Jafnframt hafi hann beitt líkamlegum aflsmunum gegn tveimur lögreglumannanna og losað sig frá þeim er þeir reyndu að yfirbuga hann. Hann er sakaður um að hafa einnig ýtt við þeim, rifið í hár lögreglukonunnar og potað fingri í hægra auga hennar.
Mest lesið Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Fleiri fréttir Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Sjá meira