Innlent

Bréf trúlausra til mannréttindaráðs

Afar skiptar skoðanir eru um hvort prestar Þjóðkirkjunnar eigi að hafa aðgang að leik- og grunnskólabörnum á skólatíma
Afar skiptar skoðanir eru um hvort prestar Þjóðkirkjunnar eigi að hafa aðgang að leik- og grunnskólabörnum á skólatíma
Vantrú, félag trúlausra, hefur sent mannréttindaráði Reykjavíkur bréf þar sem lýst er ánægju vegna hugmynda ráðsins um samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög.

Þar segir ennfremur:

„Vantrú hefur í mörg ár reynt að benda á mikilvægi hlutleysis skóla í trúmálum og fyrir vikið höfum við fengið á okkur ásakanir og árásir líkar þeim sem þið megið nú þola.

Séra Þórhallur Heimisson kallar ykkur til dæmis „bókstafstrúaða öfgasinna" á bloggi sínu. 

Og séra Bjarni Karlsson sakar ykkur um „andúð á Þjóðkirkjunni", óskynsemi og vanþekkingu á eðli samfélagsins og segir ykkur ganga gegn "félagslegum hagsmunum þúsunda barna". 

Svo eru það auðvitað þeir sem vísa í hefðarökin, telja ykkur vera að rífa niður íslenska menningu og jafnvel brjóta mannréttindi á meintum meirihluta o.s.frv.

En allt þetta sýnir aðeins hvað kirkjunni er í raun mikið í mun að fá aðgang að börnum áður en þau þroska með sér gagnrýna hugsun. Ef þið efist þó eitthvað um það viljum við benda ykkur á eftirfarandi ályktanir úr kirkjunnar ranni og byrjum á starfshópi sem séra Halldór Reynisson fræðslufulltrúi á biskupsstofu skipaði 2003:

„Eins og það eru námsráðgjafar og sálfræðingar tengdir skólunum, sé ég fyrir mér djákna eða prest í hvern framhaldsskóla." 

Lokaorð þessa starfshóps voru: „Síðustu orð Jesú til lærisveinanna voru: „Farið og gjörið allar þjóðir að lærisveinum..." Hlutverk kirkjunnar er skýrt, að fara með boðskap Jesú og fara að fordæmi Jesú. " 

En samt sem áður vísar þessi sami Halldór því á bug núna að trúboð sé stundað í skólum og „furðar sig á tillögu Mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um að takmarka aðgang trúfélaga að skólastarfi í borginni."

Tillaga til þingsályktunar um námskrá fyrir fræðslu þjóðkirkjunnar á Kirkjuþingi 2010: „Æskilegt er því að auka samstarf kirkjunnar og leikskólans." „Auka þarf samstarf skólans og kirkjunnar enda nær skólinn til flestra barna sem skírð eru."

Og að lokum ályktun Prestastefnu 2010: „Prestastefnan áréttar mikilvægi heimila og skóla í uppeldi og menntun ungrar kynslóðar til heilbrigðra lífshátta og tileinkunar kristinna lífsgilda."

Allir prestar hafa upp á vasann vígslubréf frá biskupi þar sem segir að þeim „beri að boða Guðs orð rétt og hreint samkvæmt heilagri ritningu og í anda evengelísk-lúterskrar kirkju". Um anda evangelískrar-lúterskrar kirkju segir í stefnumótun Lúterska heimssambandsins: „Boðun er hið eiginlega eðli kirkjunnar. Boðun er ekki valkostur kirkjunnar. Boðun er grundvöllur veru hennar sem „ein, heilög, almenn og postulleg" kirkja (Níkeujátningin)."Í siðareglum presta segir að þeim beri að „boða Krist og útbreiða ríki hans".

Um boðun kirkjunnar segir Karl Sigurbjörnsson biskup: „Orðið mission er margrætt og hlaðið. Í kirkjulegu samhengi er það gjarna þýtt kristniboð." „Kirkjan er send með boðskap. Það er hlutverk hennar og verkefni hennar öll eru með einum eða öðrum hætti liður í þeirri sendiför."

Kirkjunnar menn sverja auðvitað af sér að um trúboð sé að ræða en „þetta er náttúrulega trúboð. Það er ekki hægt að kalla þetta annað," segir Halldóra Guðmundsdóttir, formaður Reykjavíkurdeildar Félags leikskólakennara.

 

Við í Vantrú vitum sem er að tillögur ykkar miðast við stefnumótun Menntasviðs Reykjavíkur frá 2007 sem unnin var með faglegum hætti og tekur mið af stjórnarskránni, landslögum og ákvæðum mannréttindasáttmála. Við treystum að þið standið undir nafni sem Mannréttindaráð og látið ekki slá ykkur út af laginu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×