Innlent

Ferðamenn aðstoðaðir á Fimmvörðuhálsi í nótt

MYND/Vilhelm

Björgunarsveitarmen aðstoðuðu síðustu ferðamennina á Fimmvörðuhálsi niður til byggða á þriðja tímanum í nótt, en þá var orðið mjög hvasst og kalt á svæðinu.

Fyrr um kvöldið þurftu þeir að aðstoða fólk á farartækjum á Mýrdalsjökli þar sem færi þar fór að spillast undir kvöld. Vindkælingin uppi á hálsinum í nótt svaraði til 28 stiga frosts.

Samkvæmt veðurspá verður þar kalt og hvasst í dag. Ekki bætti í gosið í nótt og var skjálftavirkni lítil. Hraunrennsli er bæði ofan í Hruna- og Hvannárgil.

Vísindamenn telja að með sama áframhaldi berist hraun niður á Króssáraura eftir nokkra daga.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×