Borga skal sjúkraliðum fyrir akstur vegna vinnu 25. október 2010 06:00 Í Garði Átta sjúkraliðar sem vinna á Garðvangi en búa ekki í Garðinum eiga að fá aksturspeninga sem teknir voru af þeim.
Sjúkraliðar á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Garðvangi í Garði eiga að fá greitt fyrir akstur til og frá vinnu búi þeir í nágrannasveitarfélögunum, segir Félagsdómur. Garðvangur lækkaði og felldi síðan alfarið niður greiðslur til sjúkraliðanna vegna aksturs til og frá vinnu. Átta sjúkraliðar sættu sig ekki við það og málinu var vísað til Félagsdóms. Segir í úrskurði Félagsdóms að þrátt fyrir yfirlýsingar framkvæmdastjóra dvalarheimilsins um hið gagnstæða hafi ekki verið leitað samkomulags við sjúkraliðana varðandi þau tilvik þar sem almenningssamgöngur féllu ekki að vaktakerfi. Þótt stjórnendum hafi verið ljóst að almenningssamgöngur hentuðu ekki alltaf hafi hvorki verið fundin önnur lausn né hafi sjúkraliðarnir fengið greitt fyrir akstur á eigin bílum allar götur frá 1. febrúar á þessu ári. Ákvarðanir Garðvangs séu andstæðar kjarasamningi. „Verður fallist á þá kröfu stefnanda að viðurkennt verði að ferðir til og frá vinnustað teljist til vinnutíma að því er nemur flutningstíma frá mörkum næsta aðalíbúðarsvæðis til vinnustaðar,“ segir í niðurstöðu Félagsdóms. Dómurinn kveður upp úr með að sjúkraliðar sem starfa á Garðvangi en eru búsettir í Reykjanesbæ, Sandgerði eða Vogum eigi rétt á því að dvalarheimilið sjái þeim fyrir ferðum til og frá vinnustað eða greiði ferðakostnað. Slíkar ferðir teljist til vinnutíma. - gar
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Fleiri fréttir Fagna „heimkomu“ Baldurs eftir margra vikna fjarveru Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira