Innlent

Í gæsluvarðhald eftir að hafa ruðst vopnaður inn til fyrrverandi kærustu

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í gær fyrir að ryðjast vopnaður inn á heimili fyrrverandi kærustu sinnar í Hveragerði.

Maðurinn flúði svo af vettvangi en var stöðvaður af lögreglunni í Reykjavík við Rauðavatn og þaðan fluttur til lögreglunnar á Selfossi sem fer með rannsókn málsins.

Það var svo í dag sem sýslumaður fór fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem fallist var á.

Maðurinn á að hafa ruðst vopnaður inn á heimili konunnar og unnið henni mein. Konan var færð til læknisskoðunar í kjölfarið. Þá á maðurinn að hafa ollið einhverjum skemmdum innandyra. Að auki er hann grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna þegar hann ók bifreið sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×