Innlent

Ósátt við ákvörðun Guðlaugs Þórs

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson. Mynd/Anton Brink
Stór hluti landsmanna er óánægður með þá ákvörðun Guðlaugs Þór Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, að segja ekki af sér þingmennsku. Að sama skapi eru fjölmargir ósáttir við þá fyrirætlun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fyrrverandi varaformanns Sjálfstæðisflokksins, að setjast á nýjan leik á þing í haust. Þetta kemur fram í könnun sem MMR vann fyrir Viðskiptablaðið og greint er frá á vef blaðsins í kvöld.

Í vor var hávær krafa um það þeir sem þáðu hæstu prófkjörsstyrkina á árunum fyrir hrun viku af Alþingi. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í sumar var farið fram á að Guðlaugur Þór segði af sér þingmennsku.

Þá kemur fram á vef Viðskiptablaðsins að stærstur hluti landsmanna er sáttur við þá ákvörðun Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, fyrrverandi þingmanns Samfylkingarinnar og borgarstjóra, að segja af sér þingmennsku í vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×