Innlent

Gerður Kristný verðlaunuð

Gerður Kristný fékk Vest-norrænu barnabókaverðlaunin í dag fyrir bók sína Garðurinn. Vestnorrænu barnabókaverðlaunin eru veitt annað hvert ár og fara dómnefndir yfir tilnefndar bækur frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Verðlaunin hafa verið veitt fimm sinnum og er þetta í fjórða skiptið sem íslenskur höfundur vinnur til verðlaunanna.

Ólína Þorvarðardóttir formaður Vest-norræna ráðsins gerði grein fyrir verðlaununum en í hátíðarsal Alþingis í dag en það var Dagný Kristjánsdóttir fulltrúi í dómnefnd sem afhenti verðlaunin.

Búið er að semja um kvikmyndagerð bókarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×