Innlent

Tvær og hálf milljón til Pakistan

MYNd/AP

Hjálparstarf kirkjunnar sendir 2,5 milljónir króna til neyðarhjálpar í Pakistan. Fjármununum er miðlað í gegnum ACT Alliance sem Hjálparstarfið er aðili að. Í tilkynningu segir að þrír ACT-aðilar séu að störfum í Pakistan og þekkja allar aðstæður. „Samtals reikna þeir með að ná til um 270.000 manns."

Samkvæmt ACT eru 80% þeirra sem leita til þeirra eftir hjúkrun, konur og börn. „Diakonie Katastrophenhilfe (DKH) starfar með innlendum aðilum að því að reisa bráðabirgðahúsnæði og/eða hreinlætisaðstöðu fyrir samtals 72.000 manns í tveimur héruðunum. Flóðavatnið er óhreint og starfinu fylgir fræðsla um sjúkdóma sem berast með vatni," segir ennfremur.

Þá segir að flóðin í Pakistan breiðist hratt út og er eyðilegging talin ná yfir í það minnsta 40% af landinu. „Meira en tvær milljónir manna hafa misst heimili sín og þúsundir manna látnar. Vannæring er stórfellt vandamál þar sem talið er að 77 milljónir Pakistana hafi verið vannærðir fyrir flóðin. Mikil hætta er á að sjúkdómar breiðist út sem þeir hafa lítið mótstöðuafl gegn. Fjölda fólkst hefur ekki enn náðst til. ACT Alliance starfar í 130 löndum eftir helstu stöðlum í neyðar- og mannúðaraðstoð bæði SPHERE og siðareglum Alþjóða Rauða krossins, Rauða hálfmánans og annarra mannúðarsamtaka."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×