Galdurinn liggur í frostinu 1. september 2010 05:00 Þeir Hákon og Snorri eru ekki hrifnir af bragðinu af reyniberjunum. Þau eru reyndar ekki æt fyrr en eftir rétta meðhöndlun.fréttablaðið/gva „
Það er óvenjulega mikið af reyniberjum í ár eins og af öðrum jarðargróðri. Reyniberin eru stórkostlegt haustskraut en líka góð til átu með réttri meðhöndlun,“ segir Hildur Hákonardóttir, höfundur bókarinnar Ætigarðurinn – handbók grasnytjungsins. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að greinar reynitrjánna eru að sligast undan berjum. Svo verður aðeins um stuttan tíma því haustvindar munu senn slíta berjaklasana af trjánum sem verða þá engum til gagns. Margir líta þó ekki við berjunum þar sem þau eru römm og fara ekki vel í maga þess vegna. Hildur segir hins vegar að berin megi nota bæði í hlaup, til víngerðar og einnig í skreytingar. „Það er hægt að vinna á beiskjunni í berjunum með því að láta þau frjósa fyrst í einn sólarhring og liggja síðan í vatni í þrjá sólarhringa. Þá er nauðsynlegt að skipta um vatn oft á dag eða láta renna á þau.“ Hildur segir að frysting sé ævaforn aðferð til að ná remmu og jafnvel eitri úr plöntum. Suður-Ameríkubúar nýttu þessa aðferð til að ná remmu úr villtum kartöflum. Hildur segir að reyniberin gerjist gjarnan á trjánum þegar þau eldast. „Ég hef heyrt að það megi sjá á flugi þrasta á haustin þegar þeir fljúga gjarnan á gluggarúður að þeir séu þrælhífaðir.“ - shá
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Fleiri fréttir Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Sjá meira