Innlent

Kennurum fækkar um átta á tveimur árum

Álftanesskóli. Fækkun bekkja í öðrum bekk hefur valdið óánægju.
Fréttablaðið/Valli
Álftanesskóli. Fækkun bekkja í öðrum bekk hefur valdið óánægju. Fréttablaðið/Valli

Stöðugildum í Álftanesskóla hefur fækkað um átta á síðustu tveimur árum. Nú eru 39 stöðugildi í skólanum en voru 47 skólaárið 2008 til 2009, sem er 20 prósenta fækkun. Nemendafjöldinn er sá sami, eða um 460 börn.

Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri segir ástæðuna kröfu um niðurskurð í öllu skólakerfinu. Gjaldþrot sveitarfélagsins bæti hins vegar ekki úr skák. „En þó svo að það hefði ekki orðið gjaldþrota þá hefði samt verið farið í þennan niðurskurð, öll sveitarfélög eru að draga til baka aukafjárveitingar sem þau hafa sett í skólana,“ segir Sveinbjörn.

Meðal þess sem fækkun kennara hefur í för með sér er að nemendur í 2. bekk eru í tveimur bekkjum í stað þriggja í fyrra. 45 krakkar eru í árgangnum og 22 og 23 því í bekkjunum. Foreldrar í árganginum voru mjög ósáttir við þessa breytingu, enda hefur verið venjan í Álftanesskóla að hafa ekki tvo bekki fyrr en í 3. bekk, nema árgangurinn sé stærri en 50 börn. Fjallað var um áskorun þeirra til skólayfirvalda um að halda bekkjunum þremur í bæjarstjórn en bæjarstjórn bókaði stuðning við þá ákvörðun skólanefndar að fækka bekkjum.

Ingólfur Sveinsson er eitt þeirra foreldra sem voru ósátt við breytinguna. „Mér finnst afleitt að hafa svona stóra bekki á meðan börnin eru enn í öðrum bekk,“ segir Ingólfur sem meðal annars stakk upp á því við foreldra í árganginum að þeir myndu sjálfir borga fyrir þriðja kennarann, en sú hugmynd hlaut ekki undirtektir foreldra.

Sveinbjörn segir eðlilegt að foreldrar láti í sér heyra en bendir á að þrátt fyrir fækkun kennara sé meðalstærð bekkja í Álftanesi ekki nema 20 börn. - sbt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×