Innlent

Ellisif hætt hjá Varnarmálastofnun

Ellisif Tinna Víðisdóttir.
Ellisif Tinna Víðisdóttir.

Ellisif Tinna Víðisdóttir lét af forstjórastarfi Varnarmálastofnunar í gær, samkvæmt áætlun stjórnvalda um að leggja þessa yngstu stofnun lýðveldisins niður.

Það kemur endanlega til framkvæmda um áramót, en þangað til á verkefnisstjórn , skipuð af utanríkisráðherra, að annast reksturinn.

Óvissa ríkir um framtíð 50 manna starfsliðs stofnunarinnar, en stjórnvöld hafa sagt að reynt verði að finna þeim nýjan starfsvettvang hjá hinu opinbera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×