Innlent

Einungis munaði níu atkvæðum

Frekari verkfallsaðgerðum hefur nú verið aflýst eftir að samið var. fréttablaðið/gva
Frekari verkfallsaðgerðum hefur nú verið aflýst eftir að samið var. fréttablaðið/gva

Kjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og launanefndar sveitarfélaga (LN) var samþykktur í almennri atvæðagreiðslu í fyrradag. Einungis munaði níu atvæðum, en 100 manns voru ósamþykkir samningum og 109 samþykkir. Talningu lauk laust fyrir hádegi í gær.

Undirritun samningsins fór fram þann 20. ágúst síðastliðinn og byggði hann á tillögu frá ríkissáttasemjara. „Það er ástæða til að fagna þessari góðu kjörsókn en að sama skapi ber að túlka þennan nauma mun sem skýr skilaboð til forsvarsmanna LSS um að grípa miklu fyrr til aðgerða,“ segir Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri LSS.

„Þá er ljóst í mínum huga að andstaða félagsmanna við nýgerðan kjarasamning skýrist meðal annars af því að samningurinn er ekki afturvirkur en eldri samnningur rann út 31. ágúst 2009 eða fyrir réttu ári,“ segir hann.

Samningurinn gildir til 30. nóvember þessa árs og hefst undirbúningur fyrir gerð nýs kjarasamnings á næstu dögum. Öllum frekari verkfallsaðgerðum hefur nú verið aflýst af hálfu LSS, en allsherjarverkfall hafði verið boðað þann 3. september næstkomandi, hefðu samningar ekki náðst. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×