Grípa til aðgerða gegn misnotkun á ritalini 1. september 2010 16:57 Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra. Mynd/Stefán Karlsson
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, hefur skipað vinnuhóp til að skipuleggja aðgerðir til að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun á methýlphenídati, sem birtist umfram allt í mikilli notkun á Ritalini og Ritalin Uno, að því er segir á vef heilbrigðisráðuneytisins. Notkun þessara lyfja hefur vaxið gríðarlega hér á landi á undanförnum árum og er nú tvöfalt til þrefalt meiri en á öðrum Norðurlöndum. Einkum hefur ávísunum til fullorðinna einstaklinga fjölgað og eru þeir nú rúmlega 40% allra sem fá lyfið. Staðfest hefur verið að einstaklingar sem koma til meðferðar hjá SÁÁ séu í síauknum mæli fíklar á methýlphenídat. Fram kemur á vef ráðuneytisins að sömu þróunar hefur orðið vart hjá fíklum sem leita til bráðamóttöku Landspítala. Yfirlæknir SÁÁ hefur hvatt heilbrigðisráðuneytið til að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að þessi efni séu seld á götunum og notuð til að sprauta sig með.Fá tvo mánuði Landlæknisembættinu og Lyfjastofnun hefur verið falið að grípa strax til aðgerða til að herða eftirlit með ávísunum og takmarka afgreiðslu þessara lyfja við þann hóp sem sannanlega þarf á lyfjunum að halda. Vinnuhópnum er ætlaður tveggja mánaða tími til að endurskipuleggja alla meðferð lyfjaflokksins, þ.m.t. endurskoðun á klínískum leiðbeiningum og aðrar þær aðgerðir sem hópurinn telur nauðsynlegar. Jafnframt er vinnuhópnum falið að tryggja að þeir sem þurfa á meðferð með þessum lyfjum að halda skaðist ekki, en það eru einkum börn og ungmenni upp að 20 eða 22ja ára aldri.Skerða ekki aðgengi barna og ungmenna að nauðsynlegum lyfjum Þá tekur heilbrigðisráðuneytið sérstaklega fram að þessum aðgerðum er ekki ætlað að beinast gegn þeim sem á þessum lyfjum þurfa að halda - sérstaklega börnum og ungmennum. Í því skyni hefur ráðuneytið haft samráð við Geðlæknafélag Íslands og stjórn ADHD-samtakanna, sem leiddi m.a. til þess að ákveðið var að miða við 20 ára aldur. Aðgerðirnar eiga því í engu að skerða aðgengi barna og ungmenna að nauðsynlegum lyfjum, heldur beinast að mögulegri mis- og ofnotkun fullorðinna.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Innlent Fleiri fréttir Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Sjá meira