Innlent

Flóahreppur braut lög með brottrekstri

Hart var deilt um fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í aðdraganda sveitarstjórnar­kosninga. Nýtt framboð sem var andsnúið virkjuninni varð undir í kosningunum.Fréttablaðið/Anton
Hart var deilt um fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í aðdraganda sveitarstjórnar­kosninga. Nýtt framboð sem var andsnúið virkjuninni varð undir í kosningunum.Fréttablaðið/Anton

Flóahreppur braut ítrekað lög þegar sveitarstjórn hreppsins vék formanni umhverfisnefndar hreppsins frá og skipaði nýjan formann stuttu fyrir aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor, samkvæmt úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Sveitarstjórnin ákvað á fundi sínum 17. mars síðastliðinn að víkja Almari Sigurðssyni úr embætti formanns umhverfisnefndar, eins og fjallað var um í Fréttablaðinu á þeim tíma. Almar kærði brottvikninguna til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

„Þetta er bara eitt dæmi um vinnubrögðin sem viðgengust hjá þáverandi sveitarstjórn,“ segir Almar. Hann segir málinu lokið af sinni hálfu, en það sé ágæt áminning fyrir sveitarstjórnarfólk um að vanda sig í sínum mikilvægu störfum.

Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að ekki sé neitt athugavert við að sveitarstjórn skipti um fulltrúa í nefndum verði trúnaðarbrestur. Framkvæmdin var hins vegar ekki í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Í aðdraganda kosninga kom fram nýtt framboð í Flóahreppi. Að því stóð hópur fólks sem var andsnúinn Urriðafossvirkjun. Hart var tekist á um virkjanamál fyrir kosningarnar, og virðist brottrekstur Almars hafa verið hluti af þeim deilum.

Í fundargerð sveitarstjórnar þar sem ákveðið var að víkja Almari frá kemur fram að hann hafi tilkynnt um framboð gegn sitjandi sveitarstjórn. Var vísað í tvö viðtöl við Almar í Fréttablaðinu, þar sem hann var titlaður „einn aðstandenda“ nýs framboðs.

Almar mótmælti því að hafa lýst yfir framboði, og var hvergi á lista í sveitarstjórnarkosningunum. Eiginkona hans leiddi hins vegar lista fólks sem fór fram gegn sitjandi sveitarstjórn.

Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að sveitarstjórnin virðist hafa byggt ákvörðun sína á túlkun sinni á fréttum Fréttablaðsins, í stað þess að sannreyna þann skilning sinn að Almar væri sjálfur á leið í framboð. Samkvæmt úrskurðinum var sveitarstjórninni ekki heilmilt að víkja honum frá án þess að staðreyna upplýsingarnar.

Í kjölfar brottvikningar Almars kaus sveitarstjórnin nýjan formann umhverfisnefndar. Þar braut sveitarstjórnin aftur lög, þar sem þau kveða á um að þurfi að kjósa fulltrúa í ráð eða nefnd skuli kjósa í nefndina alla að nýju. Vegna þessa var skipan í nefndina ólögmæt.

brjann@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×