Innlent

Varnarmálastofnun 190 milljónum undir áætlun

Varnarmálastofnun.
Varnarmálastofnun.

Rekstrarafkoma Varnarmálastofnunar er um 190 milljónum undir áætlun samkvæmt tilkynningu frá Varnamálastofnun. Rekstaráætlun tímabilsins gerði ráð fyrir kostnaði upp á 683 milljónir, en þann 1. september voru bókfærð gjöld um 487 milljónir.

Einhverjir reikningar til stofnunarinnar gætu þó átt eftir að berast stofnuninni.

Þá segir í tilkynningunni að Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, hafi verið leyst undan reglubundnum starfsskyldum sínum frá og með 1. september. Hún verður á launum til áramóta þrátt fyrir engar sérstakar starfsskyldur þangað til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×