Innlent

Börn 12 ára og yngri mega bara vera úti til átta

Foreldrar eru hvattir til að tryggja að börn séu ekki í tölvunni á kvöldin þegar þau eiga að vera farin að sofa.
Foreldrar eru hvattir til að tryggja að börn séu ekki í tölvunni á kvöldin þegar þau eiga að vera farin að sofa.

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag. Nú mega börn 12 ára og yngri aðeins vera úti til klukkan átta á kvöldin. Unglingar á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan tíu.

Bregða má út af þessum reglum fyrir eldri hópinn þegar unglingarnir eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.

Útivistarreglurnar eru miðast við barnaverndarlög. Þeim er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.

„Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst meðal annars að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið," segir í tilkynningu frá lögreglu þar sem minnt er á breyttan útivistartíma.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×