Innlent

Nánast útilokað fyrir ríkisborgara utan EES að fá atvinnuleyfi

Nánast útilokað fyrir ríkisborgara utan EES að fá atvinnuleyfi

Nánast útilokað er fyrir ríkisborgara landa utan EES að fá atvinnuleyfi hér landi miðað við núverandi atvinnuleysi. Þetta segir forstjóri Vinnumálastofnunar.

Vinnumálastofnun hafnaði nýverið beiðni Jussanam da silva, sem er brasilísk, um atvinnuleyfi hér á landi þar sem hún er ekki af EES svæðinu. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar tvö í gær hefur Jussanam unnið á frístundaheimlinu Hlíðaskjóli undanfarin tvö ár en vinnuveitandi hennar þurfti að segja henni upp þar sem hún fékk ekki áframhaldandi atvinnuleyfi.

Vinnumálastofnun vísar til þess að á Íslandi sé mikið atvinnuleysi og fólk af EES svæðinu gangi fyrir í störf.

„Nú eru ekki gefin út ný atvinnuleyfi fyrir fólk í ófaglærð störf. Við störfum eftir þessari forskrift að jafna eftirspurn eftir vinnuafli. Atvinnyuleysi er mjög mikið meðal ófaglærðra og yfir 55 prósent af þeim sem eru atvinnulausir. Það segir sig sjálft að það er ekki þörf á nýju vinnuafli inn á þann markað," segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar.

Jussanam hefur áfrýjað málinu til dómsmálaráðuneytisins en málið hefur enn ekki verið tekið fyrir. Gissur segir að þessi stefna sé við lýði víðast hvar í Evrópu þar sem atvinnuleysi er mikið.

„Það gildir auðvitað öðru máli ef það eru sérstakar aðstæður, sérhæft störf sem að eða tímabundin störf sem mönnum er ætlað að vinna þá koma inn önnur sjónarmið en ef það er um almenn störf að ræða þá þurfa menn að leita annað eða vera um kyrr í sínu heimalandi," segir Gissur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×