Körfuknattleiksmenn þurfa að skila sakavottorði frá FBI Erla Hlynsdóttir skrifar 1. september 2010 15:58 Margir körfuknattleiksmenn koma árlega til landsins og sækja um dvalarleyfi Myndin tengist fréttinni ekki beint
Frá og með deginum í dag þurfa Bandaríkjamenn sem sækja um dvalarleyfi hér á landi að skila inn sakavottorði frá bandarísku alríkislögreglunni, FBI. Þetta gildir um þá sem búið hafa í Bandaríkjunum í fimm ár eða lengur. Áhrif þessara breytinga teygja sig víða og þurfa leikmenn sem koma hingað til lands á vegum Körfuknattleikssambands Íslands margir hverjir að aðlaga sig nýjum reglum. Kristinn Geir Pálsson, íþróttafulltrúi Körfuknattleikssambandsins, fundaði með fulltrúum Útlendinaeftirlitsins fyrir helgi vegna breytinganna og bíður eftir svörum um hvernig hægt er að gera umsóknarferlið sem einfaldast. Kristinn Geir bendir á að fyrir hafi það verið heldur flókið að sækja um dvalarleyfi og mikilvægt að allar upplýsingar um breytt ferli séu sem aðgengilegastar. Samkvæmt nýjum reglum eru sakavottorð frá einstökum fylkjum eru ófullnægjandi þar sem þau ná einungis yfir það tiltekna fylki sem gefur vottorðið út og erfitt hefur verið að fá þau staðfest af viðeigandi stjórnvöldum. Kristinn G. Pálsson hefur verið í góðu samstarfi við Útlendingastofnun vegna breytinganna Tólf lið eru í efstu deild karla í Iceland Express-deildinni og má einn leikmaður hvers liðs koma frá landi utan evrópska efnahagssvæðisins. Yfirleitt koma þessir leikmenn frá Bandaríkjunum. Átta lið eru í efstu deild kvenna og eru dæmi um að bandarískar konur spili í þeim liðum. Þessar breytingar hjá Útlendingaeftirlitinu snerta körfuknattleiksliðin því beint.Kristinn býst ekki við því að breytingarnar valdi Körfuknattleikssambandinu vandkvæðum en mikilvægt sé að fyrir liggi hvaða leið er greiðfærust fyrir körfuknattleiksmenn sem sækja um landvistarleyfi. Mörg lið fá til landsins leikmann sem strax er ljós að passar liðinu á meðan önnur þurfa jafnvel að skipta sínum erlendu leikmönnum út og fá nýja inn. Það geti því verið óþægilegt ef biðtíminn vegna dvalarleyfis er mjög langur og hætta á að leikmenn hreinlega missi af leikjum.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Fleiri fréttir Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Sjá meira