Innlent

Haraldur Flosi furðar sig á myndbandi um eldhús OR

Erla Hlynsdóttir skrifar

Myndband af glæsilegu eldhúsi Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls vekur mikla athygli orkunotenda og fólk gagnrýnir að Orkuveitan hafi í góðærinu látið setja upp hjá sér eldhús sem gæti vel sómað sér á fínustu hótelum erlendis.

Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, var gestur Bylgunnar í morgun þar sem hann var spurður hvort hann hefði einhverju sinni rekið í rogastans yfir fjárfestingum orkuveitunnar. Honum varð þá hugsað til þessa íburðarmikla eldhúss.

„Ég fékk í gærkvöldi sent myndband um eldhús Orkuveitunnar. Ég vil nú tala af virðingu um störf fólks og sýna tillitssemi á allan hátt en ég bara spurði mig: Af hverju að gera myndband um eldhús Orkuveitunnar? Ég bara veit það ekki," sagði Haraldur Flosi í samtali við Heimi Karlsson og Kolbrúnu Björnsdóttur Í bítinu á Bylgjunni.

Hægt er að hlusta á viðtalið með því að smella á tengilinn hér að ofan en myndbandið sjálft er að finna hér.

Myndbandið var unnið af Orkuveitunni í góðærinu og þótti þá sýna glæsilegan og verðskuldaðan aðbúnað starfsmanna hennar. Í ljósi stöðu fyrirtækisins hefur myndbandið nú öðlast vinsældir hjá andstæðingum gjaldskrárhækkunar Orkuveitunnar.

Fyrirhugaðar hækkanir leggjast illa í landann og er fólk ósátt við að þurfa að blæða þegar fyrirtækið hefur ekki sýnt ráðdeild í fjármálum undanfarin misseri. „Menn hafa sýnt mikinn metnað í fjárfestingum Orkuveitunnar," segir Haraldur Flosi. „Við erum svolítið að sitja uppi með það."

Meðal þeirra aðgerða sem þrýstihópar hafa bent á til að mótmæla hækkun Orkuveitunnar á orkuverði er að skipta um þjónustufyrirtæki eða fara í svokallað orkuverkfall með því að slökkva á öllu rafmagni hjá sér í fimm mínútur daglega. Haraldur Flosi gaf lítið fyrir þessar hugmyndir.

„Það hljómar kannsi hálf asnalega en ég vil bara hvetja fólk til samstöðu um að bjarga þessu fyrirtæki. Eins og var verið að ræða hérna áðan þá erum við að bjarga hluta af þjóðarskútunni. Það er erfið staða og við erum að taka erfiðar ákvarðanir," segir Haraldur Flosi.

Hann segist aldrei áður hafa stutt hækkanir á orku til almennings. „Ég velti stundum fyrir mér hvernig það gerðist að ég er orðinn talsmaður hækkana á orkuverði. Ég hef ekki verið það hingað til. En það er bara leiðin," segir Haraldur Flosi.

Myndbandið um eldhús Orkuveitunnar má sjá hér.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×