Innlent

Skáksveit Rimaskóla Norðurlandameistari

Strákarnir með verðlaunin.
Strákarnir með verðlaunin.
Skáksveit Rimaskóla sigraði á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fór um helgina í Osló í Noregi. Sveitin sigraði finnsku sveitina 3,5 - 0,5 í lokaumferðinni og hlaut 15 vinninga, 1,5 vinningi meira en Danir sem urðu aðrir.

Oliver Aron Jóhannesson, Jón Trausti Harðarson og Kristinn Andri Kristinsson unnu í lokaumferðinni en Dagur Ragnarsson gerði jafntefli á fyrsta borði.

Jón Trausti og Oliver unnu allar sínar skákir, 5 af tölu og Kristinn Andri fékk 3 vinninga í þremur skákum.

Lokastaðan á mótinu var eftirfarandi:

1. Rimaskóli 15½ vinningur

2. Danmörk 14 vinningur

3. Noregur I 9½ vinningur

4. Svíþjóð 9 vinningur

5. Noregur II 8½ vinningur

6. Finnland 3½ vinningur

Sveit Rimaskóla skipa Dagur Ragnarsson (1½ vinningur af 5) Oliver Aron Jóhannesson (5 vinningar af 5), Jón Trausti Harðarson (5 vinningar af 5), Kristófer Jóel Jóhannesson (1 vinningur af 2) og Kristinn Andri Kristinsson (3 vinningar af 3)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×