John Lennon hefði orðið framúrstefnurokkari og aðgerðarsinni Heimir Már Pétursson skrifar 9. október 2010 19:21
Yoko Ono segir tímann líða undarlega hratt og þykir ótrúlegt að John Lennon hefði orðið sjötugur í dag. Hefði hann lifað, væri hann aðgerðarsinni og framúrstefnurokkari, segir ekkjan. Ringo Starr, annar tveggja eftirlifandi Bítla, er á landinu og verður á tónleikum Plastic Ono Band í kvöld. John Lennon hefði orðið sjötugur í dag hefði hann lifað en hinn 8. desember verða 30 ár liðin frá því hann var myrtur í New York. Yoko Ono ekkja Lennons veitti í dag fjórum einstaklingum Lennon-Ono friðarverðlaunin. Josh Fox fékk verðlaunin fyrir mynd sína Gasland sem fjallar um hvernig olíuiðnaðurinn hefur lagt heilu þorpin í rúst og eyðilagt vatnsból þúsunda manna með gasborunum undanfarin ár, Barbara Kowalcyk og Robert Kennar fyrir baráttunni fyrir vistrænni og heilsufarslega öryggri matvælaframleiðslu og Alice Walker höfundur Purpuralitsins fyrir baráttu hennar gegn kynþáttahatri og fyrir mannréttindum. Borgarstjóri setti athöfnina í Höfða í dag og krafðist þess að Liu Xiaobo friðarverðlaunahafi Nóbels yrði þegar og án skilyrða látinn laus úr fangelsi í Kína. Alice Walker sagðist hafa verið vinur John Lennons og Yoko í áratugi án þess að hafa nokkru sinni hitt þau. Henni væri heiður að taka við friðarverðlaunum þeirra. Með lagi sínu Woman is the Nigger of the World hefði Lennon búið um sig í hjarta svartrar konu og svo söng hún lagbút eftir Lennon. Plastic Ono Band verður með tónleika í kvöld og ekki er útilokað að Ringo Starr trymbill Bítlanna komi fram með hljómsveitinni ásamt Dhani Harrison syni George Harrison en þeir eru báðir komnir til Reykjavíkur í tilefni dagsins.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira