Míla segir samning um sameign vanta 3. september 2010 03:45 Eva Magnúsdóttir
Ásakanir Vodafone vegna dráttar á því að fyrirtækið hafið fengið aðgang að svonefndum Nató-ljósleiðara beinast að röngum aðila, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá Mílu. Míla bendir á að fimm af átta þráðum ljósleiðarakapalsins séu í eigu Mílu og þrír séu í eigu Nató og á forræði utanríkisráðuneytisins. „Ekki hefur verið gerður sameignarsamningur á milli Mílu og Varnarmálastofnunar. Míla sendi drög að slíkum samningi að beiðni Varnarmálastofnunar um miðjan júní 2010. Núverandi þjónustusamningur Mílu og Varnarmálastofnunar tilgreinir ekki hvernig hátta skuli þjónustu við þriðja aðila. Til þess að þriðji aðili komist inn á þráðinn þarf að ráðast í verklegar framkvæmdir og ekki er til samningur um hvernig þeim skuli háttað. Það er á forræði utanríkisráðuneytisins, sem umsýsluaðila ljósleiðaraþráðanna, að gera slíkar ráðstafanir með samningi við Mílu,“ segir í yfirlýsingu Mílu. Bent er á að með leigu ljósleiðara sé ráðuneytið komið á fjarskiptamarkað, án þess að hafa sótt um heimild til slíkrar starfsemi. „Telji Vodafone að tafir séu á aðgangi að þeim ljósleiðara sem fyrirtækið hefur leigt af utanríkisráðuneytinu, þá eru það vinsamleg tilmæli Mílu til Vodafone að fyrirtækið beini máli sínu til réttra aðila, það er utanríkisráðuneytisins.“ Samkvæmt upplýsingum frá Vodafone kveðst fyrirtækið munu bera allan kostnað sem til kynni að falla vegna tenginga inn á ljósleiðarakapalinn og því er haldið fram að Míla hafi boðist til að opna fyrir aðgang á tengistöðum sem þegar séu til staðar, svo sem á Gunnólfsvíkurfjalli á Langanesi og Bolafjalli við Bolungarvík. Eva Magnúsdóttir, forstöðumaður sölu hjá Mílu, segir ekki rétt að slíkur aðgangur hafi verið boðinn. Þá telur Vodafone rök um skort á sameignarsamningi ekki halda og að orðalagsbreytingar á þjónustusamningi Mílu og Varnarmálastofnunar nægi til þess að tryggja Vodafone, eða einhverjum öðrum, aðgang að nauðsynlegum búnaði. Varnarmálastofnun er sögð hafa óskað eftir því ítrekað við Mílu að fyrirtækið geri drög að breyttum texta, en þau hafi ekki skilað sér. Eva áréttar enda að ekki myndi nægja að breyta orðalagi þjónustusamningsins, nauðsynlegt væri að gera sérstakan samning um sameignina í ljósleiðarakaplinum. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira