Innlent

Samkomulag um vinnustaðaskírteini undirritað

Fulltrúar Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og aðildarsamtaka þess og Samtaka atvinnulífsins (SA) undirrituðu í dag samkomulag um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum. Í tilkynningu segir að samkomulagið byggi á lögum nr. 42/2010 sem samþykkt voru á Alþingi 11. maí sl. um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni.

„Markmið vinnustaðaskírteina og eftirlits á vinnustöðum er að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum," segir einnig en samkomulagið tekur gildi 15. ágúst nk.

Byggingastarfsemi, mannvirkjagerð, rekstur gististaða og veitingarekstur fellur undir gildissvið samkomulagsins og er miðað við ÍSAT2008 flokkun atvinnurekanda í fyrirtækjaskrá RSK. Samkomulagið afmarkar einnig nánar hvaða starfsmenn innan þessara atvinnugreina falla undir eftirlitið.

Samkvæmt lögunum er eftirlitsfulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins heimilt að fara í eftirlitsheimsóknir á vinnustaði atvinnurekanda til að ganga úr skugga um að atvinnurekandi og starfsmenn hans starfi í samræmi við gildandi reglur. Skal eftirlitsfulltrúunum veittur aðgangur að vinnustöðum í þeim tilgangi og skulu atvinnurekandi og starfsmenn hans sýna vinnustaðaskírteini sé óskað eftir því.

Opnaður hefur verið sérstakur vefur, www.skirteini.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×