Fjörutíu fangar sviku út atvinnuleysisbætur 8. október 2010 18:30
Fjörutíu fangar hafa þegið atvinnuleysisbætur á þessu ári. Dæmi eru um að einstaklingar hafi setið í fangelsi í nokkra mánuði og svikið út atvinnuleysisbætur um leið. Áætlaður sparnaður vegna eftirlitsstarfsemi Vinnumálastofnunar er um 700 milljónir króna á eins árs tímabili. Hópur manna hjá Vinnumálastofnun hefur í rúmt ár unnið að því að upplýsa bótasvik. Í byrjun árs fékkst lagaheimild til að samkeyra upplýsingar Vinnumálastofnunar við ýmsar stofnanir í samfélaginu. Sú samkeyrsla hefur nú skilað þeim árangri að hópnum hefur tekist að svipta hulunni af hundruðum bótasvika. Meðal annars er búið að samkeyra gögn við Fangelsismálastofnun. Niðurstaðan er þessi: Fjörutíu fangar á bak við lás og slá hafa þegið atvinnuleysisbætur á þessu ári. Dæmi eru um að fangar sem setið hafa inni í marga mánuði hafi þegið atvinnuleysisbætur á sama tíma. Þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur þurfa að staðfesta atvinnuleit rafrænt mánaðarlega. Þetta virðist ekki hafa verið hindrun fyrir fanganna en grunur leikur á að skráningar hafi farið fram innan veggja fangelsanna. Á þessu ári hafa borist tæplega áttahundruð ábendingar um bótasvik. Langflestar snúa að svartri atvinnustarfsemi og að einstaklingum sem eru erlendis og þiggja atvinnuleysisbætur um leið. Dæmi eru um að fólk hafi verið erlendis svo mánuðum skiptir en samt sem áður þegið atvinnuleysisbætur. Misjafnt er hvort bótagreiðslur séu stöðvaðar eða krafist endurgreiðslu. Vinnumálastofnun hefur leyfi til að leggja ofan á ofgreiðslur 15% álag. Með eftirlitsstarfsemi Vinnumálastofnunar er gert ráð fyrir að komið hafi verið í veg fyrir að um 700 milljónir króna hafi verið sviknar út í bætur á um eins árs tímabili. Sú upphæð er tvöfalt hærri en sá niðurskurður sem áætlaður er á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira