Eigendur vilja selja borginni Skáldastíg 1. september 2010 06:00 Áratugir hafa liðið án þess að borgaryfirvöld hafi tekið endanlega afstöðu til þess hvaða stöðu Skáldastígur eigi að hafa í skipulagi borgarinnar. Hér er séð frá Unuhúsi og niður stíginn.Fréttablaðið/GVA „
Það yrði menningarsögulegt slys ef Skáldastígur hyrfi,“ segir Kristinn E. Hrafnsson, myndlistarmaður og eigandi Mjóstrætis 4, sem vill að borgin kaupi fornfrægan göngustíg á lóð hans. Skáldastígur liggur um lóð Kristins að hinu sögufræga Unuhúsi í Garðastræti 15 þar sem löngum var afdrep skálda á borð við Halldór Laxnes og Þórberg Þórðarson. Húsið þar og lóðina á Gestur Ólafsson arkitekt. Hann hefur í áratugi reynt að fá borgina til samstarfs um Skáldastíg, meðal annars á árinu 1987 með bréfi til þáverandi borgarstjóra, Davíðs Oddssonar, og eftirmanna hans í ráðhúsinu. „Þetta mál hefur farið marga hringi hjá borginni,“ útskýrir Kristinn, sem sjálfur kom ekki að málinu fyrr en árið 2002 þegar hann eignaðist Mjóstræti 4. Kristinn og Gestur hafa sjálfir annast Skáldastíg og ávallt haldið honum opnum, jafnt fyrir þá sem leið eiga í gegn og þá sem gagngert koma til að skoða stíginn og Unuhús. En þeim finnst ósanngjarnt að greiða fasteignagjöld af lóðinni undir stígnum. Þvert á móti telja þeir að borgin ætti að kaupa landið undir stígnum eða þá leigja það af þeim. Í augnablikinu er málið á leið til umfjöllunar hjá menningar- og ferðamálaráði borgarinnar eftir að hafa verið tekið fyrir í skipulagsráði í síðustu viku þar sem lagðar voru fram umsagnir frá Minjasafni Reykjavíkur og skipulags- og byggingarsviði borgarinnar. Niðurstöður þessara tveggja aðila eru ósamhljóma. Skipulagsráð mælir ekki með því að svo stöddu að eyða fé í að tryggja tilvist Skáldastígs „enda lifir sagan áfram þótt stígurinn hverfi,“ eins og segir í umsögn Ágústar Jónssonar skrifstofustjóra. Guðný Gerður Gunnarsdóttir. þjóðháttafræðingur hjá Minjasafni Reykjavíkur, minnir hins vegar á að Reykjavík hafi sótt um útnefningu sem bókmenntaborg UNESCO. „Hægt er að færa rök fyrir að þar sem stígurinn tengist sögu bókmennta og rithöfunda í borginnu hafi hann mikið menningarsögulegt gildi,“ segir Guðný í sinni umsögn. Kristinn E. Hrafnsson kveðst undrandi á því hversu illa gangi hjá borginni að taka ákvörðun. „Það er furðulegt að það skuli ekki vera hægt að taka á svona einföldum hlutum. Hvernig gengur þá með allt hitt?“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Sjá meira