Innlent

Ræddu bráðnun íss og hækkun sjávarborðs

Ólafur Ragnar með Mohamed Nasheed forseta Maldíveyja, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Mynd/forseti.is
Ólafur Ragnar með Mohamed Nasheed forseta Maldíveyja, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Mynd/forseti.is
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti í vikunni fund með forseta Maldíveyja, Mohamed Nasheed, í Abu Dhabi og ræddu samstarf þessara tveggja eyþjóða, en báðir sóttu Heimsþing hreinnar orku sem þar var haldið.

Bæði löndin tengjast loftslagsbreytingum á afgerandi hátt sem kemur fram í bráðnun jökla og hugsanlegum breytingum á hafstraumum við strendur Íslands og hækkun sjávarborðs við Maldíveyjar, að fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu. Samvinna landanna gæti þannig orðið áhrifarík í alþjóðlegri baráttu gegn loftslagsbreytingum.

Loftslagsbreytingar ógna þjóðaröryggi Maldíveyja þar eð hækkun sjávarborðs, meðal annars vegna bráðnunar íss á norðurslóðum, getur sökkt eyjunum á næstu áratugum. Forseti Maldíveyja hefur að undanförnu reynt að vekja athygli heimsbyggðarinnar á þessari aðsteðjandi hættu.

Forsetarnir ræddu einnig um fiskveiðar og orkumál. Nasheed hefur áhuga á að kynna sér reynslu og tækni Íslendinga á þessum sviðum, bæði með samstarfi sérfræðinga og með því að heimsækja Ísland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×