Innlent

Fólk á níræðis- og tíræðisaldri staðið að hnupli

Hnuplmál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær en slíkt er nánast orðið daglegt brauð að því er fram kemur í tilkynningu. Að sögn lögreglu eru snyrtivörur og fatnaður á meðal þess sem þjófar ásælast en hinir óprúttnu aðilar eru á öllum aldri og af báðum kynjum.

„Liggur við að fátt komi lögreglunni lengur á óvart þegar hún kemur á vettvang og finnur þar fyrir börn, unglinga eða gamalmenni sem hafa tekið hluti ófrjálsri hendi. Sem dæmi má nefna að undanfarið hefur fólk á bæði níræðis- og tíræðisaldri verið staðið að hnupli."

Þá segir lögreglan að fólk fólk, sem er með börnin sín meðferðis, hafi verið staðið að vafasamri iðju en í gær var kona tekin fyrir þjófnað í verslunarmiðstöð en ung dóttir hennar var með í för.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×