Innlent

Leggur til skipan fjárhaldsstjórnar fyrir Álftanes

MYND/Vilhelm

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) hefur lagt til við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að Sveitarfélaginu Álftanesi verði skipuð fjárhaldsstjórn sem hafi forystu um endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins. Er það með vísan til 76. greinar sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu segir að Kristjáni L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hafi verið afhent bréf þessa efnis í dag.

„Í bréfinu kemur fram að EFS hefur gert fulltrúum sveitarstjórnarinnar, forystumönnum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu grein fyrir því að til þessarar ráðstöfunar gæti komið. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra átti síðdegis í dag fund með bæjarfulltrúum Sveitarfélagsins Álftaness og gerði þeim grein fyrir tillögu EFS. Kom fram þar að hann myndi ákveða næstu skref í málinu mjög fljótlega," segir einnig.

Í bréfinu kemur einnig meðal annars fram að EFS telji mikilvægt að leitað verði varanlegra lausna á fjárhagsvanda sveitarfélagsins og leggur nefndin til með vísan til 76. greinar sveitarstjórnarlaga að sveitarfélaginu verði skipuð fjárhaldsstjórn. Fjárhaldsstjórnin hafi forystu um endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins og leiti allra tiltækra leiða til lausnar á vandanum.

Þá er lagt til að gerður verði samningur um samskipti og verkaskiptingu fjárhaldsstjórnar og sveitarstjórnar um fjárhaldslegar aðgerðir á skipunartíma fjárhaldsstjórnarinnar. EFS bendir sérstaklega á að starfsmenn sveitarfélagsins og sveitarstjórnin hafa unnið gott verk við greiningu vandans og áætlanagerð sem ætla má að nýtist í þessu verkefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×