Innlent

Áttræður karlmaður í skilorðsbundið fangelsi fyrir íkveikju

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Áttatíu ára gamall karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa valdið eldsvoða í sumarbústaði í Grímsnesi í apríl í fyrra.

Maðurinn kastaði logandi hlut upp á svefnloft bústaðarins og hvarf síðan af vettvangi. Miklar skemmdir urðu á bústaðnum af völdum elds og reyks.

Maðurinn sagði fyrir dómi að bústaðurinn væri í eigu fjölskyldu hans. Hann játaði brot sitt. Í dómnum kom fram að rétt hefði þótt að skilorðsbinda refsinguna yfir manninum vegna þess að hann var fæddur árið 1930 og hafði ekki hlotið dóm áður.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×