Jóhannes Jónsson: Óvissu um Haga eytt 4. febrúar 2010 17:14 Jóhannes Jónsson. MYNDIR/Vilhelm „
Það er fyrir öllu að nú hefur óvissu um framtíð Haga verið eytt," segir Jóhannes Jónsson starfandi stjórnarformaður Haga og stofnandi Bónuss í fréttatilkynningu sem send var fyrir stundu. Þar segir Jóhannes ennfremur: „Það er einlæg von mín, að nú skapist vinnufriður í kringum Haga, svo starfsmenn geti einbeitt sér að því sem þeir gera best, að reka fyrirtækið og þjóna viðskiptavinum sínum. Tækifærin eru fjölmörg og spennandi tímar framundan. Nú sitja allir við sama borð og söluferlið eins opið og gegnsætt og hægt er," segir Jóhannes. Stjórn Arion banka hf hefur í samvinnu við Haga hf komist að þeirri niðurstöðu, að óska eftir skráningu fyrirtækisins í íslensku Kauphöllina og setja það þar með í söluferli. Stefnt er að því að skráningu ljúki fyrir lok ársins 2010. Jóhannes Jónsson og starfsmenn Haga hf munu vinna með bankanum að skráningu félagsins. Jóhannes verður áfram starfandi stjórnarformaður félagsins og Finnur Árnason forstjóri. Í skráningunni felst að almenningur og fagfjárfestar munu geta keypt hluti í félaginu. Starfsfólki Haga býðst að kaupa 15% hlut, þar af Jóhannesi Jónssyni starfandi stjórnarformanni Haga allt að 10% hlut á sama gengi og öðrum fjárfestum. Það sem mestu máli skiptir fyrir Haga er að nú fer af stað gegnsætt ferli sem mun skapa ró um félagið samkvæmt tilkynningunni. Margir fjárfestar, bæði innlendir og erlendir, hafa sýnt áhuga á félaginu. Stjórnendur Haga vonast til að skráning félagsins verði til þess að auka áhuga á íslensku Kauphöllinni og ekki síður íslensku atvinnulífi.
Tengdar fréttir Baugsfeðgar missa Haga Stjórn Arion banka hefur ákveðið að óska eftir skráningu verslunarfyrirtækisins Haga í Kauphöllina í samvinnu við Haga og selja hlut bankans í félaginu. 4. febrúar 2010 16:12 Mest lesið Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Innlent Svandís stígur til hliðar Innlent „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Innlent Fleiri fréttir Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Sjá meira
Baugsfeðgar missa Haga Stjórn Arion banka hefur ákveðið að óska eftir skráningu verslunarfyrirtækisins Haga í Kauphöllina í samvinnu við Haga og selja hlut bankans í félaginu. 4. febrúar 2010 16:12